Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
Eru til draugar
Laugardagur, 21.6.2008
Mamma og pabbi fluttust til Eyja þegar ég var á unga aldri þau fengu leigt í húsi sem Pálsborg hét meðan verið var að dytta að Vesturhúsum sem þau höfðu fest kaup á. Þetta voru gamlar verbúðir mjög hrörlegar.
Talið var að mikill draugagangur væri í því húsi og enginn gat búið þar til lengri tíma.Leigan var mjög lág .
Átti það eftir að koma í ljós og man ég það vel á þriðja ári það var á vindasömu vetrar kvöldi að hávaðinn byrjaði eins og svo oft áður mikið skrjá og þung hljóð komu að ofan en yfir húsinu var ris.Mamma sagði okkur systrunum að bíða við stigann hún ætlaði að fara upp og a.t.h draugana því þeir voru fleiri en ein þetta var mjög brattur stigi upp hún með vasaljós sitt eina vopnið.
Þegar upp kom sá hún þessa banasvítu draugana en það voru gamlar málningar dollur dagblöð og annað drasl sem hafði verið skilið eftir, illa hafði verið gengið fé stafni húsin og vindurinn náði þar undir sem olli óskopnum.
Var þetta allt tekið og draugagangurinn hætti á sömu stundu.
Mamma bað okkur stelpurnar að segja ekki nokkrum manni frá þessu.því ef fólk frétti af þessu myndi húsaleigan hækka.
Hélt ég þessu loforði þar til þetta er skrifað.
Fannst mér þetta verða að höll eftir þennan atburð.
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Hvartmílubraut við svefnherbergis gluggan minn.
Laugardagur, 21.6.2008
Það er skrítið að eftirlit á götum úti skuli ekki vera betra og að hljóðmúrar ekki til staðar við miklar umferðar götur íbúar eiga oft svefn litlar mætur þó mest um helgar.
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ferðin
Mánudagur, 16.6.2008
Kominn heim eftir erfiða ferð sem tók 15 tíma á flugi.
Tímamismunur eru 8 tímar svo núna er eins og að stíga öldur svo ég held að ég leggi mig.Eftir að hafa séð litlu dótturdóttir mína sem gerði mér þann stóra greiða að koma í þennan heim deiginum áður en ég og sonur inn fórum í ferðina.
blogg | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Það er svo skrítið.
Mánudagur, 16.6.2008
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tan fæddist í dag
Þriðjudagur, 3.6.2008
Stúlka komin 18 merkur fædd 3 jún kl 11.20 Næstum tilbúin að labba.
þakka fyrir að fá þessa yndislegu stúlku inn í líf mitt.
Þakklát fyrir að fá að sjá hana áður en ég fer til Singapore en þangað höldum við á morgnum.Svo núna er ég orðin amma.