Færsluflokkur: bloggar
Vörubíkstjórar og þotuliðið.
Miðvikudagur, 23.4.2008
Aðgerðir vörubílstjóra gegn háu olíuverði eru meira en skiljanlegar. Þær eru barátta manna sem hafa margir hverjir engu að tapa. það er komin tími til að stjórnvöld geri sér grein fyrir því að þeir eru að vinna fyrir OKKUR ! Fari að hætta þessum flottræfilshátti í þotuferðalögum sínum út um allan heim og komi strax til baka með Iceland express og fari að vinna vinnuna sína,áður en allt fer fjandans til.
bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Lífsreglur.
Þriðjudagur, 22.4.2008
1.Mundu að þú ert einstök.
2.Mundu að þú ert mikilvægur einstaklingur.
3.Mundu að þér var gefið vit til að nota það.
4.Mundu að þú hefur eitthvað að gefa,sem enginn annar getur gefið.
5.Mundu að þú átt skilning og reynslu,sem aðrir hafa ekki.
6.Mundu að þú getur verið hreykin af mörgu eiginleikum þínum.
7.Mundu að þú getur ýmislegt.
8.Mundu að umbera þá sem eru þér ólíkir.
9.Mundu að einhverjum þykir vænt um þig.
10. Mundu að þú kannt eitthvað, sem þú getur kennt öðrum.
11.Taktu því með með opnum hug ,sem aðrir geta gefið þér.
Þessar lífsreglur samdi ung félafskona í Norska húsmæðrasambandinu.
bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)