Það má kalla það öfund en ég vil fá að leyfa mér að kalla það óréttlægi
Fimmtudagur, 4.12.2008
Það má kalla það öfund en ég vil fá að
leyfa mér að kalla það
óréttlæti.Það var þegar ég var lítil stúlka að mamma vann við fiskverkun og pabbi
var á sjónum þau unnu myrkranna á milli meðan við systurnar sáum
að mestu leyti um okkur sjálfar. Það var oft sárt að sjá þau þreytt
og búin á líkama pabbi var nánast aldrei heima alltaf á sjónum
og var hann farinn þegar við systurnar vöknuðum síðan fór líka
mamma og við þurftum að koma okkur í skólann.
Pabbi veiktist þegar ég var innan við fermingu og lá mörg á sjúkrahúsi
og náði sér aldrei og lést ekki orðin fimmtugur.
Vinnuálagið var gífurlegt á mínum uppvaxtarárum og ekki hægt að
segja að heimilislífið hafi verið mikið þegar vertíðir stóðu sem hæst,
það er kannski sem ég á svo erfitt með að heyra um
þennan gjafakvóta. Hverjir eiga fiskinn. ´
Kunningjakona mín ein er gift einum slíkum manni
hún á helminginn á móti honum.
Það er ekki að sjá að þreytan skíni úr hennar augum
ekki líkt foreldra minna enda hefur hún aldrei unnið
eða komið nálagt fiskvinnu þessi elska.
En þá mættir spyrja mig hvað hún fer í
andlitsmeðferð handsnyrtingu hárgreiðslu og fatainnkaup.bröns
sem er svo flott orð að vantar þann í minn orðarforða
þegar frúin er að fara út í heim í alla þessa lúxus ferðir.Já bíddu við er það ekki í góðu lagi hún sem á fiskinn í sjónum
hún á fiskin í sjónum og hennar maður lögðu það á sig.
Athugasemdir
Veit ekki hvað er að! En textinn er ekki allur að koma inn .Sorrý Þú mitt elskulega Ísland það er ekkert að virka hjá þér!
SVAR: berist hið fyrsta
Anna Ragna Alexandersdóttir, 4.12.2008 kl. 00:23
Og Mannréttindastofnun SÞ er búin að dæma kvótakerfið sem brot á okkur,en stjórnvöld sinna því engu.
Rannveig H, 4.12.2008 kl. 00:26
Heyr mín góða er ekki að skilja þig er búinn að' vera að ná í þig í símann í kvöld það er alltaf á tali Er mín farin að stjórna landinu haaaaaaaaaaaaaaKomin í frrrí
Anna Ragna Alexandersdóttir, 4.12.2008 kl. 00:39
Ía Jóhannsdóttir, 4.12.2008 kl. 07:49
Ég er sammála því að þetta er ekki öfund hjá þér, óréttlætið í kringum fiskinn er hræðilegt, vildi að við ættum hann öll og færum vel með aflann. Kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 4.12.2008 kl. 07:59
þessi kvóti er alveg út í hött, þetta er hrein spilling
Júlía Tan (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 08:01
Þetta er ekki öfund, heldur einlæg réttlætiskennd
Sigrún Jónsdóttir, 4.12.2008 kl. 12:02
kvótakerfið er stuldur frá þjóðinni
Hólmdís Hjartardóttir, 4.12.2008 kl. 12:26
Kvótakerfið er ein mesta spilling þjóðarinnar. Þekki dæmið þitt, gott ef ég hef ekki eitthvað komið nálægt svona löguðu sjálf.
Sólveig Hannesdóttir, 4.12.2008 kl. 13:01
Ég skil þig.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.12.2008 kl. 13:23
Anna Ragna mín ég var svo vitlaus að ég hélt lengi að við, allir Íslendingar ættum fiskinn ,en það var rangt hjá mér,ég skil ekki afhverju það var svona fast í mínu minni en svona er víst lífið
Knús á þig og þína mín Kæra Anna Ragna
Ólöf Karlsdóttir, 5.12.2008 kl. 01:42
Anna Ragna mín, þetta kvótakerfi er ein mesta svívirða sem gerð hefur verilð ílslenskri alþýðu. Þegar landsbyggðin var svipt lifibrauði sínu og fólk gert eignalaust. Og yfirvöld mega ekki heyra talað um að skoða þetta ranglæti, þau hælast um, og segja þetta vera svo gott kerfi. Svei þeim bara. Ég vona að þeir sem taka við landinu, um leið og okkur hefur tekist að koma þessum lýð frá völdum, að það verði byrjað á að taka aftur eignir ´þegnanna, okkar auðlindir, sem eiga að vera SAMEIGN ÞJÓÐARINNAR, en ekki prívat mál einhverra burgeisa. Knús á þig
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.12.2008 kl. 10:56
Mikið skil ég þig Anna mín. Kærleikur til þín
Kristín Gunnarsdóttir, 5.12.2008 kl. 11:26
Þetta er einfalt. Þú ert sko ekki að öfundast. Þú ert bara að segja frá réttlæiskennd þinni. Það er mest öll þjóðin á móti þessu óréttlæti sem felst í gjafakvótanum og óheftu braski með hann.
Haraldur Bjarnason, 5.12.2008 kl. 15:34
Sukkkerfið.
Víðir Benediktsson, 5.12.2008 kl. 20:53
En, segðu mér eitt, Anna Ragna, um hvað talið þið vinkonurnar þegar þið hittist? Væntanlega ekki kvótakerfið?! Af hverju eruð þið vinkonur? Ég bið þig að taka þessar spurningar ekki óstinnt upp, ég er bara dálítið forvitin, ekki í fyrsta sinn.
Sjálf er ég eignalaus örkyrki. Ég á reyndar skólasystur sem eru vel staddar í samfélaginu. En við getum tæpast talist vinkonur í dag, þó við spjöllum saman þegar við hittumst og ég beri ekki kala til þeirra. Ég öfunda þær ekki af góðu stöðunum og kjörunum, þó eins og þér svíði mér óréttlætið sem viðgengst í samfélaginu, þar á meðal kvótakerfið.
Greta Björg Úlfsdóttir, 5.12.2008 kl. 22:20
Kveðja Ásgerður þín gamla vinkona.
egvania, 5.12.2008 kl. 22:22
Reyndar verð ég að játa að það sem ég sagði um kalann er ekki alveg satt, mér fannst oft og finnst enn að þær hefðu getað verið betri vinkonur en þær voru, - en kannski var það mér sjálfri að kenna að svo var ekki, hvað veit ég. Ekki ætla ég að velta mér upp úr þeim hlutum fram á grafarbakkann, svo mikið er víst.
Bestu kveðjur til þín.
Greta Björg Úlfsdóttir, 5.12.2008 kl. 22:39
Knús til þín og góða helgi mín kæra..
Guðný Einarsdóttir, 6.12.2008 kl. 10:29
Hulla Dan, 6.12.2008 kl. 15:44
Þetta er ekki öfund hjá þér, þetta sýnir okkur hvernig allt hefur breyst og nuna er þetta, sem sagt kvótinn, í höndum fárra manna sem hafa það oft mjög gott. Ég var gift sjómanni og þá var þetta trögl!
Hafðu það sem best
Unnur R. H., 7.12.2008 kl. 18:02
Kvitt kvitt Anna Ragna mín Knús Óla
Ólöf Karlsdóttir, 7.12.2008 kl. 19:46
Sporðdrekinn, 8.12.2008 kl. 03:14
Ég skil þig vel.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.12.2008 kl. 14:12
Úpps, Anna Ragna mín, fyrirgefðu, ég var að taka eftir að þú segir "kunningjakona" en ekki "vinkona" í færslunni, þá skil ég þetta betur.
Ég á nefnilega líka slatta af kunningjakonum sem hafa það alveg prýðilegt, takk fyrir, eins og ég talaði um hér áður er ekki farið nánar út í þá sálma þegar við hittumst.
Greta Björg Úlfsdóttir, 8.12.2008 kl. 14:38
Það er ekkert að fyrirgefa Greta mín.
Njóttu dagsins vina
Anna Ragna Alexandersdóttir, 8.12.2008 kl. 14:51
Sömuleiðis.
Greta Björg Úlfsdóttir, 8.12.2008 kl. 14:59
Anna Ragna þessi kunningjakona þín og hennar maður eiga ekki fiskinn í sjónum, þjóðin á fiskinn í sjónum.
Það stendur skýrt og skorinort í Stjórnarskránni, og henni hefur ekki verið breytt. -
Svo öll sala og allur gjafakvóti er þjófnaður frá Íslensku þjóðinni. -
Þetta fólk fékk væntanlega kvóta frá fyrrverandi ríkisstjórn, og veðsetti hann með leyfi sömu ríkisstjórnar, sem gerði þeim svo líka kleift að veðsetja veðsetningarnar á óveidda fiskinum í erlendum bönkum. -
Þetta sama fólk eru þá í þeim hópi sem hafa veðsett auðlindir okkar í sjónum, og komið Íslandi í þrot. -
Þú ert heppinn Anna Ragna að vera ekki í þeim hóp, sem þau eru í. -
Því þú getur horft framan í heiminn, og sagt: Ég er af Íslensku alþýðufólki komin og er stolt afþví.-
Hafðu það sem allra best.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.12.2008 kl. 22:31
Kvitt kvitt Anna Ragna mín Og stórt knús á þig mín kæra Óla
Ólöf Karlsdóttir, 12.12.2008 kl. 23:03
Takk Óla mín fyrir kvittið sömuleiðis og mundu að njóta helgarinnar eins og ég óska ykkur öllum
Anna Ragna Alexandersdóttir, 12.12.2008 kl. 23:30
Þeir sem eru á móti aðild inn í Evrópusambandið, tala alltaf um fiskinn,,,,,, vitið þið,,,,,, það er þeir sem "eiga" fiskinn sem eru mest á móti aðild. Fisknum var stolið af okkur af Framsóknarmönnum, þeir stálu honum af þjóðinni.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 00:20
Kvótakerfið er bara ruglið svona byrjaði þetta og mun halda áfram þar til við gerum uppreisn, en hvenær verður það?
Ljós til þín
Milla.
Ps. mikið er síðan þín falleg Anna Ragna mín.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.12.2008 kl. 13:41
Takk Milla mín.
Hvað varðar kvótann, hef ég aldrei skilið skiptingu af auðlind okkar.
Má ekki skipta þessu jafnt á milli okkar allra.Værum við ekki öll miljónamæringar ef svo væri ?
Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.12.2008 kl. 13:48
Anna Ragna mín við skiljum þetta ekki öðruvísi en svo að þetta er græðgi
framin á ólöglegan hátt á kostnað okkar.
Ljós til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.12.2008 kl. 08:52
Eins og Milla segir LJÓS TIL YKKAR ALLRA
Anna Ragna Alexandersdóttir, 14.12.2008 kl. 23:22
Kvóta-málið er stærsta afbrotamál sjórnmála-klíku Ísland,- og þó víðar væri leitað. Lýsing þín á byrðunum sem lagðar eru á venjulegar fjölskyldur í landinu á sama tíma og fisk- EIGENDURNIR velta sér uppúr velmegðinni - á vel við núna, þegar aðrir peningabraskarar eru búnir að því sama - svo að enn fleiri finna fyrir.
Kveðja, Hlédis
Hlédís, 15.12.2008 kl. 21:04
Hlédís, Það er búin að dæma kvótakerfið sem brot á okkur,en stjórnvöld sinna því engu.
Mannréttindastofnun SÞ dæmdi í því máli Hver er ástæða þess að ekki er verið að gera neitt í því máli ???
Anna Ragna Alexandersdóttir, 15.12.2008 kl. 23:10
Anna! Ástæðan er sú að íslensku valda-FJÖLSKYLDURNAR eiga kvótann! Var nokkur að nefna banana? .. eða illan fnyk?
Hlédís, 16.12.2008 kl. 07:11
Anna Ragna Alexandersdóttir, 16.12.2008 kl. 11:45
...........
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.