Færsluflokkur: blogg

Gamlar myndir.

scan10155annaragna0019scan10001mamma og pabbi 521661nullnullannaragna0016annaragna0129hebronSÆTA MAMMA MIN LAUGAÉg og Þorsteinn

Dómstólar verða líka að taka harðar á þessum málaflokki

Það verður að taka þessi mál fastari tökum þar á ég við dóma sem falla í þessum málaflokki.

Hér á landi hefur það tíðkast að dómar af þessu tagi hafa verið allt of vægir, reyndar til skammar.

Það er ekki nóg að dæla pening inn í þann málaflokk ef dómarar fara ekki að dæma þá sálarkvöl sem slíkur einstaklingur verður fyrir.

 Hvers virði er  dómur fyrir einstakling sem bíður þess aldrei bætur  allt það sálarstríð sem sá einstaklingur þarf að þola.    

Sakborningur fái  nokkra mánaða dóm, þegar þolandinn bíður þess aldrei bætur.

Ég bið ykkur sem dæma að dæma eins og þetta væru börnin ykkar.


mbl.is 8,5 milljónir í styrki gegn kynbundnu ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt ár.

null Gleðilegt Ár!

Fréttir um að íslenska ríkið muni eignast hlut í verslunum Baugs í ?

Markmiðið að bankarnir þyrftu ekki að afskrifa neinar skuldir.Íslenska þjóðin tekur við öllum rekstri,útrásarvíkinganna og innrásarvíkinganna einnig.

 Látum þá ekki koma nálægt  okkar peningum þeir hafa hvort er ekkert  fjármálalegt læsi og hafa aldrei kunnað.

  Við sem þjóð vitum að þegar búið er að rétta úr kútnum og hlutirnir farnir að ganga betur verður þeirra hlutafé komið inn aftur.

Það er ekki það sama með þig Jón minn þegar þú borgar ekki af þínum skuldum ert þú gerður gjaldþrota þú átt ekkert. Þannig á það líka að vera með útrásarpk .Við sem þjóð eigum heimtingu á að þessir menn verði lýstir gjaldþrota.


mbl.is Segir ríkið ekki munu eignast verslanirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól.

treeanimÓska ykkur öllum gleðilegra jóla.

Út með þá !

Jón Gerald  sagðist vilja Tryggvi Jónsson út úr  bankanum. Mikið er ég sammála þeim manni.

Hver er ástæða þess að  sömu lykilmenn  sem komu okkur í þrot ,sitji en inni í bankanum ? Þeir sem ættu að sitja inni á Hrauninu.


mbl.is Jón Gerald mótmælir í Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það má kalla það öfund en ég vil fá að leyfa mér að kalla það óréttlægi

Það má kalla það öfund en ég vil fá aðDSC02895

 leyfa mér að kalla það

 óréttlæti.  

Það var þegar ég var lítil stúlka að mamma vann  við fiskverkun og pabbi

var á sjónum þau unnu myrkranna á milli meðan við systurnar sáum

að mestu leyti um okkur sjálfar. Það var oft sárt að sjá þau þreytt

og búin á líkama  pabbi var nánast aldrei heima alltaf á sjónum

 og var hann farinn þegar við systurnar vöknuðum síðan fór líka

 mamma og við þurftum að koma okkur í skólann.

Pabbi veiktist þegar ég var innan við fermingu og lá mörg á sjúkrahúsi

og náði sér aldrei og lést ekki orðin fimmtugur.

Vinnuálagið var gífurlegt á mínum uppvaxtarárum og ekki hægt að

 segja að heimilislífið hafi verið mikið þegar vertíðir stóðu sem hæst,

 það er kannski sem ég á svo erfitt með að heyra um

þennan gjafakvóta. Hverjir eiga fiskinn. ´

Kunningjakona mín ein er gift einum slíkum manni 

 hún á helminginn á móti honum.

Það er ekki að sjá að þreytan skíni úr hennar augum

ekki líkt  foreldra minna enda hefur hún aldrei unnið

eða komið nálagt fiskvinnu þessi elska.

 En þá mættir spyrja mig hvað hún fer í

andlitsmeðferð handsnyrtingu hárgreiðslu og fatainnkaup.bröns

 sem er svo flott orð að vantar þann í minn orðarforða 

 þegar frúin er að fara út í heim í  alla þessa lúxus ferðir.

Já bíddu við er það ekki í góðu lagi hún sem á fiskinn í sjónum

hún á fiskin í sjónum og hennar maður lögðu það á sig. 

Ég vil þakka þér Íslenska kona.

 Æskan reyndist oft erfitt og það er vissulega reynsla sem færir okkur þroska

á einhvern hátt þó sár sé.

Pabbi veiktist alvarlega, hann var sendur á spítalann mikið veikur og var þar

 næstu 12 árin. . Nú varð mamma að vinna meir en áður með þrjár

ungar dætur.  Ekki var hægt að sækja í bótakerfið var ekki til staðar á hennar tíma.

Að setja sig á bæinn eins og það var kallað. Stolt hennar  leyfði það ekki.

Nú fórum við að finna fyrir verulegum skorti.

Það var ekki kjöt á sunnudögum eins og verið hafði áður. Anna Ragna  á Vesturhúsum

 Fiskur alla daga vikuna  og ég man að ég passaði upp á að ná í siginn fisk

út á snúrustaur á laugardögum svo engin sæi að við borðuðum fisk líka

á sunnudögum.Börn eru dugleg að fela ástandið fyrir umhverfinu sama hvað það er.

Nú voru erfiðir tímar í vændum og við reyndum að hjálpa til að bestu getu.

Nú var alltaf kalt þegar við komum úr skólanum og mamma vann myrkranna á milli

Ég vil þakka þér elsku mamma fyrir þína þrautseigu og vilja einan að vopni.

Takk.


Hvert fara SÓKNARgjöldin sem við borgum sundur.

Hvert renna sóknargjöld?

Getum við verið viss um að okkar Peningar fari á réttan stað ? Er þeir peningar sundurliðaðir

Þjóðkirkjusöfnuðir, skráð trúfélög samkvæmt lögum um trúfélög nr. 18/1975 (sjá nú lög um skráð trúfélög nr. 108/1999) og

Háskólasjóður skulu eiga ákveðna hlutdeild í tekjuskatti samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt og eignarskatt nr. 75/1981,

með síðari breytingum.

Þessi fjárhæð - sóknargjald - reiknast fyrir hvern þann sem orðinn er 16 ára 31. desember árið áður en gjaldár hefst.

1. Gjald einstaklings, sem skráður er í þjóðkirkjuna, rennur til þess safnaðar sem hann tilheyrir.

2. Gjald einstaklings, sem tilheyrir skráðu trúfélagi, rennur til hlutaðeigandi trúfélags.

3. Gjald einstaklings, sem hvorki er í þjóðkirkjunni né skráðu trúfélagi, rennur til Háskóla Íslands.

Gjaldið miðast við skráningu í þjóðskrá 1. desember árið áður en gjaldár hefst og skiptist þannig:

Frekari skýringar er að finna í lögum um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987.


Nú stöndum við upp og viljum uppgjör.

Þjóð sem borgar hæðstu vexti í heimi.Þjóð sem verður að hafa verðtryggð lán.Þjóð sem ekki treyst til að borga sínar skuldir. Þjóð sem allir vissu að krónan var ekki tryggÞjóð sem varð að láta vini og ættingja   skrifa upp á  lán til að tryggja að bankinn fengi sitt.Þjóð sem hefur bankaleynd.Þjóð sem er í greypum bankanna.Þjóð sem á ekkert heimili lengur því það eiga bankarnir. Þjóð sem  báðir foreldrar vinna úti til að ná endum saman. þjóð sem hefur unnið hvað lengstan vinnudag.Þjóð sem á ónýtan gjaldmiðill eða ofnýttan .Þjóð sem afnam verðtryggingu launa með einu pennastriki.Þjóð sem gat ekki  lifað á dagvinnu einni saman.Þjóð sem er svo lítill að hún verður að hafa sendiráð út um allan heim.Þjóð sem embætti bruðlar með peninga þjóðarinnar.Þjóð sem gaf nokkrum útvöldum kvótann.Þjóð sem má þola vinavæðingu.Þjóð sem verður að hafa háskóla út um allar sveitir.Þjóð sem getur ekki nýtt sér sína menntunnar vegna vinarvæðingu.Þjóð sem gat ekki fengið fyrirgreiðslu nema að þekkja mann í einhverju embætti. Þjóð sem er hunsuð þegar ráðamenn eru spurðir. Þjóð sem miljónir hverfa og þú kæra þjóð borgar.Þjóð sem torfbæjar löginn eru enn í gildi.Þjóð  sem hefur alla þessa þingmenn. Góðærið er búið hjá stjórnmálamönnum. En nú stöndum við upp og viljum  uppgjör. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband