Jólakveðja til ykkar.
Laugardagur, 25.12.2010
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lánin.
Fimmtudagur, 8.7.2010
Sorgarfréttir
segja má,sögu landsins okkar,
þeir þig píndu þokka þjóð,
þannig voru lánin, öll sú vinna á þig lögð, áfram máðu lánin, allt það sem þig dreymdi um, voru kannski bara lánin.blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kæra þjóð.
Laugardagur, 10.4.2010
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Það er með ólíkindum hvað dagblöð eru lítið í takt við þjóðina !
Mánudagur, 7.12.2009
Það er með ólíkindum hvað dagblöð eru lítið í takt við þjóðina.
Þegar ég las blöðin í morgun var mér hugsað til þess hvort fréttarenska okkar þjóðar væri ekki á hærra plani.
Undrast þá fréttamennsku sem í Íslenskri þjóð á barmi gjaldsþrot er boðið upp á .
Fyrirsögn fréttablaðs 7 des
Byr verður trauðla bjargað. Hvað er nú það fyrir venjulegan Íslending ?
Börn með offitu vandamál. Búta vantar í litning sextán.
Útilokuð frá sammfélaginu.
Trúverðug kristni ?
Loftslagráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hefst í dag.
Gerir það gott í Svíþjóð.
Grannagreiði hjá Citý.
Veður þurrt SV-lands.
Gómsæt gjöf fyrir sælkera.
Túnfiskbátur.
Fagmennska í fyrirrúmi.
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eftir gengin æfispor ótal, myndir geymast
Þriðjudagur, 21.7.2009
Við erum fædd i tilveru sem okkur er ætluð á degi hverjum.Mundu að það er stundin sem skiptir máli,lengra komumst við ekki hverju sinn.
Hafið góðan dag,elsku samferðarfólk.
blogg | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Málverkin mín
Laugardagur, 18.7.2009
Hér koma tvær myndir sem ég var að klár. Ef áhugi er til staðar er ég komin með málverk í eldhúsið ykkar.
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er til meira en bara peningar $
Miðvikudagur, 8.7.2009
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tómir eldhúsveggir í Færeyjum. Gerði mitt besta.
Föstudagur, 12.6.2009
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gleðilegt sumar
Fimmtudagur, 23.4.2009
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Að hafa efni á borgun fyrir það eitt að vera Íslendingur ?
Sunnudagur, 8.3.2009
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Hvað tíminn líður hratt.
Laugardagur, 28.2.2009
Við hittumst vinkonurnar eitt kvöldið og vorum að rifja upp puttaferðalag sem við fórum í saman.
Skrítið að það eru liðin þrjátíu og sex ár síðan.
Hvað tíminn líður hratt.
blogg | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Mamma og pabbi er ég A-bekkur eða B-bekkur.
Laugardagur, 28.2.2009
Ég fór aldrei í stubbadeild mamma gerði tilraun en ég grenjaði svo á endanum eftir nokkrar tilraunir gafst mamma upp.Ég vissi eflaust að það óréttlæti sem var í mínu litla samfélagi var á rökum reyst þó lítil sál væri. Í B-bekk með þig það byggðist allt á þínum hraðlestri hvar þú lentir. Hvar sem þínir hæfileikar voru ? Það sýnir hvað þetta kerfi gerði fyrir litlar sáli, það má segja að þessi litlu börn voru tröðkuð niður í skítinn með því að fá á sig B stimpill. . Sum þeirra eru þar enn. Að berjast við að fá viðurkenningu eins og við öll þráum að fá,. Mannlegt eða hvað ? Sorglegt og ef ég mætti vera svo óforskömmustuleg vildi ég biðja til guðs að þetta fólk vildi fyrirgefa þessum börnum ! Það ódæði sem það gerði þessum ungu sálum, sem voru að hefja líf sitt í því sakleysi sem þau áttu rétt á.!!!! Sem foreldri spyr ég þig ????Mamma, pabbi,afi og amma. Hvert vildir þú setja barnið þitt? Í !! A eða B flokk ????
Sársauki í keiku !!
Fimmtudagur, 19.2.2009
eða hvað ? Ég labbaði inn í Keiluhöllina létt í skapi og hlakkaði til að fara að spila keilu og borða góðan mat með vinnufélögum mínum.Nokkrir vinnufélagar voru komnir og það var gaman að sjá þá.Við vissum að það var skemmtilegur tímar framundan hjá okkur.Ég skráði mig á braut en var algjör viðvaningur hafði aðeins einu sinni farið í keilu áður en allt má læra og hugur minn var fullur áhuga.Þetta gekk sæmilega hjá mér en þetta var svo gaman að ég hugsaði með mér að fara oftar í þennan leik,þegar óhappið skeði keilubandið stíflaðist og þegar keilukúlurnar hlóðust inn.Ég stóð þar sem þær koma inn og var á spjalli við einn vinnufélaga minn, þegar ein kúlan fer upp úr raufinni og skellur niður á tærnar á mér. Hræðilegum sársauka.Ekki gat ég spilað meir, en sat og horfði á það sem eftir var leiks.Eftir leikinn fórum við að borða og alltaf sat ég með verk í kjálkanum við að bíta á jaxlinn vildi ekki skemma skemmtunina fyrir hinum.Maðurinn minn elskulegi kom og sótti mig er heim var komið var verkurinn farinn að aukast all verulega og ekki svaf ég mikið um nóttin fyrir þrýsting í tásonum mínum, endaði það með því að ég þoldi ekki lengur við og en var minn yndislegi ökumaður til staðar og á Bráðavaktina var haldið.Vildi bara láta tappa út blóðinu því þrýstingurinn var mér óþolandi. Dásamlegur læknir skoðaði mig sendi mig í myndatöku og þegar niður var komið kallaði hann mig inn til sín, þar sá ég tærnar mínar í maski á mynd. Ekki var hægt að tappa út vegna sýkingahættu svo það var bara að reyna að þrauka og það er ég að gera í dag. 
























