Sársauki í keiku !!
Fimmtudagur, 19.2.2009
Sunnudagur í keilu. eða hvað ? Ég labbaði inn í Keiluhöllina létt í skapi og hlakkaði til að fara að spila keilu og borða góðan mat með vinnufélögum mínum.Nokkrir vinnufélagar voru komnir og það var gaman að sjá þá.Við vissum að það var skemmtilegur tímar framundan hjá okkur.Ég skráði mig á braut en var algjör viðvaningur hafði aðeins einu sinni farið í keilu áður en allt má læra og hugur minn var fullur áhuga.Þetta gekk sæmilega hjá mér en þetta var svo gaman að ég hugsaði með mér að fara oftar í þennan leik,þegar óhappið skeði keilubandið stíflaðist og þegar keilukúlurnar hlóðust inn.Ég stóð þar sem þær koma inn og var á spjalli við einn vinnufélaga minn, þegar ein kúlan fer upp úr raufinni og skellur niður á tærnar á mér. Hræðilegum sársauka.Ekki gat ég spilað meir, en sat og horfði á það sem eftir var leiks.Eftir leikinn fórum við að borða og alltaf sat ég með verk í kjálkanum við að bíta á jaxlinn vildi ekki skemma skemmtunina fyrir hinum.Maðurinn minn elskulegi kom og sótti mig er heim var komið var verkurinn farinn að aukast all verulega og ekki svaf ég mikið um nóttin fyrir þrýsting í tásonum mínum, endaði það með því að ég þoldi ekki lengur við og en var minn yndislegi ökumaður til staðar og á Bráðavaktina var haldið.Vildi bara láta tappa út blóðinu því þrýstingurinn var mér óþolandi. Dásamlegur læknir skoðaði mig sendi mig í myndatöku og þegar niður var komið kallaði hann mig inn til sín, þar sá ég tærnar mínar í maski á mynd. Ekki var hægt að tappa út vegna sýkingahættu svo það var bara að reyna að þrauka og það er ég að gera í dag.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
VÁ !!! Alveg hreint óhugnanleg lýsing á því sem átti að vera hugguleg vinnufélagastund. - Hvernig líður þér í dag kæra bloggvinkona? - Hvaða tá/tær voru þetta? - Þú getur heldur betur átt lengi í þessu? - Veistu eitthvað um það strax hvernig þetta ferli verður? - Ég vona bara að þér líði vel miðað við aðstæður, en ég get alveg ímyndað mér kvalirnar, sem þú þarft að líða. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.2.2009 kl. 17:09
æ rófan mín......þetta getur tekið tíma!
Gangi þér vel vinkona
Hólmdís Hjartardóttir, 19.2.2009 kl. 17:32
Anna min, farðu vel með þig, þetta er ekki gott. Batakveðjur
Kristín Gunnarsdóttir, 19.2.2009 kl. 17:42
Elsku vinan þetta er skuggalegt vá,vonandi fara verkirnir minnkandi ljúfan mín,hef þig í bænum mínumkærleiksknús á þig
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 19.2.2009 kl. 17:53
Takk fyrir hugulsemi ykkar.
Líðan er sæmileg en ég á erfitt með mig. kann ekki að vera góð við mig.
Nokkuð sem væri hægt að fara vinna í.
En tá tvö og þrjú kippa mér til hlýðni.
kærleiksknús til ykkar elsku bloggvinkonur gott að vita af ykkur.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 19.2.2009 kl. 19:10
Ansans óheppni - Þú vinnur í að vera góð við þig - og vonandi gerir heimilisfólk það líka
Hlédís, 19.2.2009 kl. 20:46
Þau gera það Hlédis mín,það er verra með mig.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 19.2.2009 kl. 20:51
Æ ég finn til þegar ég les þetta. Þetta hefur eflaust verið mjög sárt. Vonandi er þér faið að batna.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.2.2009 kl. 21:12
Æi það er varla hægt að vera óheppnari mín kær
Ó ég finn til með þér ái
Og vertu góð við þig haha
Sársauka kveðjur
Guðrún Pálína Karlsdóttir, 19.2.2009 kl. 21:48
Æó ekki gott það ,linar ekki klaki svolítið verkinn ,en ekki of lengi samt .En held að það lagi aðeins .
Kveðju knús til þín ,Óla
Ólöf Karlsdóttir, 19.2.2009 kl. 23:08
Æi, þetta var ekki gott. Farðu vel með þig Anna mín, það margborgar sig
Sigrún Jónsdóttir, 20.2.2009 kl. 00:18
ÆÆ aumingja þú. Er málið ekki bara að leggjast upp í sófa með tærnar upp í loft í 1-2 daga og láta stjana við sig?
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.2.2009 kl. 00:38
Anna Ragna mín þetta er hræðilegt að heyra. Vonandi batnar þér fljótt og vel. Í hvaða rétti ertu gagnvart keiluhöllinni og tryggingunum ?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2009 kl. 11:26
Góðan bata um helgina ljúfan mín
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 20.2.2009 kl. 15:33
Knúsý knús ,Óla
Ólöf Karlsdóttir, 20.2.2009 kl. 23:27
Láttu þér batna kelli mín,og mundu bara að fara vel með þig og táslurnar þínar
Guðný Einarsdóttir, 20.2.2009 kl. 23:56
Æj - ég get rétt ímyndað mér sársaukann!!
Hrönn Sigurðardóttir, 21.2.2009 kl. 11:39
Góða nótt Anna Ragna mín Óla
Ólöf Karlsdóttir, 22.2.2009 kl. 00:39
Til hamingju með konudaginn Anna Ragna mín,og áfram góðan bata
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 22.2.2009 kl. 14:17
Til hamingju konur
Anna Ragna Alexandersdóttir, 22.2.2009 kl. 23:53
Anna mín þú hefur aldeilis verið óheppin ég vona að þér líði betur en þú verður að fara vel með þig.
Kærleikur þér til handa Ásgerður
egvania, 23.2.2009 kl. 01:12
ÁI!!!
Batakveðjur til þín bloggvinkona.
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 10:51
Takk fyrir kvittin vinkona gott að vita að þetta er að koma hjá þér,farðu samt vel með þig ljúfan
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 25.2.2009 kl. 23:27
Þetta var nú meiri óheppnin,en gangi þér vel.
María Anna P Kristjánsdóttir, 26.2.2009 kl. 06:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.